Spurning 9
Til bakaSex manna vinahópur er að panta pítsur. Hver pítsa er 8 sneiðar. Vilborg og Dagur borða hvaða pítsu sem er og borða tvær sneiðar hvort. Magnús vill grænmetispítsu og borðar 3 sneiðar. Sölvi vill pepperóní á sína pítsu og borðar 3 sneiðar. Snorri borðar bara pítsur með pepperóní og rjómaosti. Hann borðar eina sneið. Ólafur borðar ekki rjómaost en vill fjórar pítsusneiðar. Hversu margar pítsur þarf vinahópurinn að panta að lágmarki til að uppfylla kröfur allra og hversu margar sneiðar verða í afgang? (Athugið að það er ekki hægt að skipta pítsu upp og fá mismunandi áleggstegundir á mismunandi hluta stakrar pítsu.)