Spurning 5
Til bakaBjörg greiðir úr ljósaseríunni sinni fyrir jólin. Ljósaserían er þannig að frá klónni (innstungunni) eru 240 cm að fyrsta ljósinu og svo taka við 80 ljós með jöfnu millibili þangað til serían endar. Það er ljós á enda seríunnar. Hver er heildarlengd seríunnar, frá klónni og að ljósinu á endanum, ef bilið milli ljósa er 15 cm?