Spurning 13
Til bakaÁ bekkjarkvöldi í 8. - Ó er haldin pizzuveisla. Öll fá þrjár sneiðar og það eru þrjár tegundir af pizzum í boði, sveppapizza, ostaveisla og hawaii. 2 nemendur fá sér eina sneið af hverri pizzu. 7 nemendur fá sér að minnsta kosti eina sneið af sveppapizzu og að minnsta kosti eina sneið af ostaveislu. 8 nemendur fá sér að minnsta kosti eina sneið af sveppapizzu og að minnsta kosti eina sneið af hawaii. 9 nemendur fá sér að minnsta kosti eina sneið af ostaveislu og að minnsta kosti eina sneið af hawaii. 5 nemendur fá sér þrjár sneiðar af sömu tegund. Hvað eru margir nemendur í 8. - Ó?